EVE Fanfest - Gleði með CCP
Sævar Helgi Bragason • September 28, 2023
Undur næturhiminsins og norðurljósaskoðun á EVE Fanfest 2023
CCP bauð mér að halda fyrirlestur um undur næturhiminsins og fara svo í norðurljósaferð með tæplega 60 þátttakendur í EVE Fanfest. Alveg ótrúlega skemmtilegt! Í erindinu fjallaði ég um eitt og annað sem sjá má með berum augum á næturhimninum. Og sýndi, eins og alltaf, loftsteina sem vöktu mikla lukku. Ljósmyndarinn Arnaldur Halldórsson tók nokkrar myndir.






Þessa dagana erum við að taka upp næstu þáttaröð af Nýjasta tækni og vísindi. Eitt innslagið fjallar um rafvæðingu flugs. Í blíðskaparveðri fékk ég sitja með Matthíasi Sveinbjörnssyni flugmanni og forseta Flugmálafélags Íslands og fljúga með honum á rafmagni yfir Reykjavík. Vélin er ótrúlega hljóðlát og fislétt. Innslagið verður sýnt í Nýjasta tækni og vísindi á RÚV næsta vetur.

Sunnudaginn 27. ágúst tók ég þátt í virkilega vel heppnuðum fjölskyldudegi Verkfræðingafélags Íslands. Þar var ég hluti af hinni frábæru Vísindasmiðju Háskóla Íslands. Þar sem veðrið var frábært og himinninn léttskýjaður tók ég sólarsjónaukann með og sýndi fólki hana. Í sjónaukanum var hægt að sjá sólbletti og sólgos. Þetta er tilvalin skemmtimennt fyrir börn og fullorðna, svo ef einhver hefur áhuga á slíku, þá er um að gera að hafa samband.